GRAFÍK
Námskeið í Grafík

Námskeið í Grafík
22., 24. og 25. mars 2012
16 kennslustundir
fimmtudag kl. 19:30-22:30 og laugardag og sunnuudag kl. 12:00 - 16:30
Kennari: Elva Hreiðarsdóttir
Elva útskrifaðist frá myndlistardeild Kennaraháskóla Íslands árið 1989 og Listaháskóla Íslands, grafíkdeild árið 2000.
Nánari upplýsingar um Elvu má sjá á heimasíðu hennar www.elva.is
Kynntur verður miðillinn grafík og stiklað á stóru í sögu grafíklistar á Íslandi. Kennd verða undirstöðuatriði dúkristu og aðrar óhefðbundnari grafíkaðferðir þar sem hugmyndaauðgi og sköpunargleði fá að njóta sín.
Verð: kr. 17.200
Skráning á [email protected]
.............................................................................................................................................................................................
FYRIRLESTRARRÖÐ 2012
Kennari: Soffía Sæmundsdóttir
LITIR MÁLARANS
Fimmtudagur 12. apríl kl. 19:30-21:30
Farið yfir ýmislegt varðandi liti og litanotkun í olíumálun. Helstu hugtök í sambandi við liti eru skýrð og skoðuð með dæmum. Hvaðan koma litir, hvernig hafa þeir þróast í gegnum söguna? Hvernig varð litahringurinn til og hvaða lögmál ríkja varðandi hann? Hvernig getum við notað litahringinn persónulega fyrir okkur? Hvernig notum við liti og hvað ber að hafa í huga sérstaklega þegar málað er með olíulitum? Hvaða liti er gott að nota í undirlag og hvaða liti í slikjur? Skoðum lítillega mismunandi tegundir af olíulitum og muninn á þeim. Dæmi af ýmsum uppáhaldsmálurum fyrirlesarans tekin og skoðað hvernig þeir nota liti til að leggja áherslu á og túlka viðfangsefnin.
Fyrirlesturinn hentar þeim sem hafa verið að mála og þeim sem eru að byrja. Dýpkar skilning á litum og litanotkun og gefur þér færi á að spyrja um það sem þig langaði alltaf að vita um liti.
TÆKNI, TÓL OG TÆKI MÁLARANS
Þriðjudagur 17. apríl kl. 19:30-21:30
Allt sem viðkemur olíumálun dregið fram í dagsljósið og skoðað nánar. Allt frá penslum, striga og öðru undirlagi, litum, spöðum, íblöndunarefnum af ýmsu tagi og grunnum kynnt og helstu notkunarmöguleikar sýndir með dæmum. Ýmis praktísk atriði reifuð og sýnd með dæmum, varðandi frágang á myndum, íblöndunarefni og grunna. Tilvalið fyrir þann sem hefur verið að mála lengi, en hentar einnig þeim sem hefur aldrei málað áður en langar til að kynnast því.
Það er tilvalið að fara á báða fyrirlestrana sem eru yfirgripsmikir og veita innsýn í ýmislegt varðandi olíuliti og notkun þeirra og þau efni sem tilheyra þeim. Í hefðbundnum tímum í málun læðist ýmis fróðleikur með sem ekki gefst færi á að skrá hjá sér en þarna er hægt að glósa og ná ákveðinni yfirsýn.
Verð á hvorn fyrirlestur kr. 2000 fyrir nemendur skólans en 2500 fyrir aðra.

UPPSTILLINGAR

Olíumálun fyrir byrjendur og lengra komna.
26. apríl og 3., 8. og 10. maí 2012
16 kennslustundir, þriðjudag og fimmtudaga
kl. 19:30-22:30
Kennari: Pétur Gautur
Pétur Gautur útskrifaðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands
árið 1991. Hann er þekktur málari og hefur stundað þá list um árabil og haldið
fjölda sýninga hérlendis og erlendis.
Á þessu námskeiði verður farið í grunnþjálfun olíumálunnar. Nemendur koma með málaradót sitt sem kennari mun yfirfara í fyrsta tíma og veita ráðgjöf fyrir frekari kaup. Farið verður lauslega yfir myndlistarsöguna, myndbyggingu, litafræði og persónulega tjáningu.

Módel
Módelmaraþon
Módelteikning og málun
helgina 11. - 13. maí.
20 kennslustundir, föstudag kl. 18:30-21:30,
laugardag og sunnuudag kl. 12:00-18:00
Kennari: Anna Gunnlaugsdóttir
Áherslan lögð á byggingu og hlutföll mannslíkamans, gerðar hraðteikningar og teiknað og málað eftir lengri stöðum.
Teiknað og málað eftir módeli. Anatómían rannsökuð og gerðar stúdíur af byggingu andlits, handa og fóta.
Innifalið; kennslugögn send í netpósti, kol og maskínupappír.
Verð kr. 26.000
Skráning og upplýsingar í síma 867 0362 og á netfangið, [email protected]